Ég sá rebba í gær!

YrðlingurFékk mér göngutúr eftir vinnu á gestastofu í gærkveldi og gekk út á Svalþúfu og niður að lóndröngum. Þegar ég nálgaðist drangana sá ég að þar var yrðlingur að fylgjast með mér og var hinn spakasti. En þegar ég kom að dröngunum hljóp hann inn í grenið sitt. Ég sat þar daggóða stund og beið eftir því að hann kæmi aftur út ásamt systkinum sínum að leika sér en mamma hefur greinilega haldið þeim til hlés.

Ætla að gera aðra tilraun í kvöld að ná betri myndum af þeim. Þeir eru orðnir nokkuð stórir og ekki er langt að bíða að þeir fari að sjá um sig sjálfir, sennilega í lok ágúst yfirgefur tófan þá.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband