Stórfjölskyldan í heimsókn!

Arnór töffariÞað er búið að  vera mikill gestagangur hjá mér hér á nesinu í sumar sem er búið að vera dásamlegt. Hákon, Íris og Arnór komu hér um miðjan júlí og voru hjá mér í tvær nætur. Skúli og fjölskylda komu frá Noregi og leigðu íbúð á Gufuskálum. Steinar og Júlía kom líka með krakkana sína og að sjálfsögðu Lilla og Milli, aðal stuðboltarnir! Þau voru hér öll yfir verslunarmannahelgina.

Ég var svo heppinn að ég var gerður að brunaverði á Gufuskálum á meðan staðarhaldari fór í frí og í staðinn fékk ég aðgang að leikherbergi sem hefur púlborð, píluspjald og flottar sjónvarps og hljómflutningsgræjur. Að sjálfsögðu notuðum við okkur aðstöðuna og héldum smá partí.

Ég setti inn smá myndasyrpu sem þið getið skoðað í albúminu fjölskyldan, góða skemmtun!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband