10.8.2008 | 17:14
Snæfellsjökull hopar!
Mikið hefur verið fjallað um Snæfellsjökul í fjölmiðlunum undanfarið. Jökullinn er að hopa og hefur sjálfsagt bráðnað mikið núna í sumar þar sem það hefur verið mjög hlýtt undanfarið. Við landverðirnir hér í þjóðgarðinum höfum fylgst vel með þróuninni og ekki vil ég meina að hann sé nánast horfinn og orðin að snjóskafli eins og sagt er í fréttinni á mbl. Þegar jökullinn er myndaður virkar hann mis stór eftir því frá hvaða sjónarhorni myndin er tekin. Þessa mynd tók ég í morgunn og er hún tekin á Hellnum. Hann er aðeins stærri en snjóskafl frá þessu sjónarhorni og ef farið er norðan megin við hann sést enn meira af jöklinum. Myndin sem sýnd er í fréttinni er tekin nákvæmlega þar sem minnst sést í jökulinn og í raun sést nánast ekért í hann heldur er þetta bara snjóskafl!
Snæfellsjökull hopar hratt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.