Færsluflokkur: Lífstíll

Sveitasæla

Landvarða(vörður)

Jæja þá er ég kominn í sveitina aftur og það er algjör sæla Hlæjandi Farinn frá mínum heitt elskaða enn og aftur Gráta en það er stutt í næsta frí.

Fyrsti vinnudagurinn fór meðal annars í gönguferð um Arnastapa í sól og blíðu og ákváðum við að taka okkur góðan tíma í þá göngu og tína rusl um leið. Það er frekar skrítið að ganga meðfram ströndinni núna þar sem megnið af fuglunum eru búnir að yfirgéfa björgin og flognir í burt á vit nýrra ævintýra. Það er ekki lengur bergmál ritunnar eða gargið í kríunni sem heyrist heldur skvallið í öldunum þegar þær brotna á klettunum og tístið í einstaka ungum sem treysta sér ekki enn til að yfirgefa hreiðrið. Ótrúlegt hvað umhverfið tekur miklum stakkaskyptum eftir árstíðum, fuglarnir þagna um leið og mesti ferðamannatíminn er búinn og fljúga burt af landinu með útlendingunum.

Við landverðirnir vinnum streytulaust áfram og bíðum þess að fyrstu snjókornin falli á Snæfellsnesið og hverfum þá burt á vit nýrra ævintýra. En það er ekki alveg komð að þvíGlottandi


Til hamingju hommar og lesbíur

Mesti gleðidagur ársins er nú runnin upp. Það er alltaf góð tilfinning að ganga niður laugaveginn og sjá og upplifa alla gleðina sem ríkir á þessum merkis degi. Ég fyllist þjóðarstolti þegar ég sé allann þennan mannfjölda sem styður okkur hommana og lespíurnar í baráttunni um aukin mannréttindi. Þetta er reyndar ekki nein kröfuganga lengur heldur gleðiganga.Hlæjandi 

Ég tók mér að sjálfsögðu frí frá landvarða störfunum til að mæta í gönguna sem jafnast ekki á við neina aðra skemtun. En það er ekki öll nótt úti enn því aðal ballið er eftir þar sem Páll Óskar mun halda uppi fjörinu fram á morgun, þannig að það er löng og ströng nótt framundan.Svalur

Og svona að lokum I AM PROUD TO BE GAY sjáumst á ballinuGlottandi


Kyngi mögnuð rómantík

Öll erum  við rómantísk og landverðir eru þar engin undantekning. Oftast reynum við sjálf að skapa  einhverskonar stemningu til að heilla aðra upp úr skónum.Koss Þá verðum við  svo upptekinn að stemningin heppnist að við sjálf förum á mis við að upplifa rómatíkina.

Alvöru rómatík er þegar eithvað gerist óundirbúið og að báðir einstaklingarnir upplifi stemninguna. Eitt það allra rómatískasta ber fyrir augum okkar nánast á hverjum degi (eða næstum því ). Það kostar ekki neitt og engin fyrirhöfn. Ég náði mynd af því og þó ég hafi áður tekið mynd af því þá er alltaf eins og maður sé að sjá það í fyrsta skiptið. SÓLARLAGIÐ Svalur


Akstur utan vega

Það er mjög eftirsóknavert á meðal margra Íslendinga að aka utan vegar. Þetta er stórt vandamál víðsvegar um landið og er eitt leiðinlegasta málið sem landverðir þurfa að glíma við. Oft verða þessi mál að lögreglu máli þó oftast séu málin kláruð á staðnum. Leiðinlegast er að lenda í því að bílstjórinn helli sér yfir mann og segir að það sé ekkért leyfilegt lengur í þessu landi, eða að hann hafi alltaf keyrt hérna og ætli sér að halda því áfram. Ein stærstu og fyrirferða mestu mannvirki í landinu eru akvegr og eru til að afmarka umferð bíla um landið.

Að aka utan vegar er eins og að ganga inn á heimili fólks á skóbroddum sem skilja eftir sig djúp för í parketinu. Þessvegna er ég með flísar í forstofunniGlottandi.


Strandverðir Íslands

Hvalaát

Ég leifi mér að kalla mig 2 nöfnum í starfi mínu. Annarsvegar Landvörður og hinsvegar Strandvörður Svalur. Mér fellur bæði starfsheitin vel þó óneitanlega virkar seinna heitið meira sexí. Þó ég telji mig ekki þurfa ákveðið starfsheiti til að vera meira sexí en ég erKoss. Strandvörðurinn kemur auga á ýmislegt á ströndinni. Hvalreki er alltaf spennandi og að fylgjast með því hvað maðkurinn er fljótur að éta upp holdið utan af beinunum. Viðbjóðslega fallega viðbjóðslegt.


Fyrsta blogfærslan

Snæfellsjökull

Loksinser ég orðin blogari. Þetta er bara rosa gaman.

Minn lífstíll þetta sumarið er LANDVARSLASvalur. Það er frábært starf og nokkuð krefjandi. Mæli eindregið með þessu starfi, sérstaklega ef maður vill komast úr borginni eitt sumar til að hlaða battaríið svo auðveldara sé að takast á við borgarstressið Ullandi.

Í dag er rólegt í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli þar sem megin hluti landans er á leið á útihátíð um allt. Þannig að þetta verður þægileg og róleg helgi hér hjá okkur landvörðunum. Aðaleg útlendingar sem koma hingað núna enda vita þeir ekki hvað orðið útihátíð eða verlunarmannahelgi þíðir.

Allavega góða helgi. 


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband